Ég spyr.... er eitthvað ljúfara en að hafa ekki komið heim lengi...svo flýgur maður beint inn yfir austfirðina snævi þakna, aðeins byrjað að blárökkna og maður sér beint niður á heimabæinn sinn. Til að toppa svo allt segir flugstjórinn, velkomin heim.
Eina sem var slæmt var Håkon litli sem sparkaði stanslaust í sætið fyrir aftan mig og leiðinlega mamma hans sem bara nennti ekki að leika við hann þessa 2-3 tíma sem flugið varði.....hann vældi líka stanslaust af leiðindum greyið enda var hann bara þriggja ára.
En heim komumst við og var tekið á móti okkur af tollvörðum...smásmyglogsekt.... og svo af Péturspabba, honum Magna Blöndal. Var okkur skutlað beint í slátrið hjá Sigríði og Sigurði sem bragðaðist ljúffenglega, betur en nokkru sinni...
Fengum aðeins að sjá Birgittu og strákana og Gísla á Tobbu. Við fórum á hriklalega góðan jólaljósarúnt sem náði frá Hafnarfirði og um allt höfuðborgarsvæðið. Ekki finnst mér skrýtið að þessi vitlausa þjóð sé á hausnum því þvílíkar breytingar og framkvæmdir sem standa ekki undir sér hef ég bara aldrei séð... Maður tók svosum þátt í góðærinu en verst finnst mér að sjá sumar byggingarframkvæmdirnar...miðbær Hafnarfjarðar var verstur...Búið að byggja blokkir beint við höfnina sem loka alveg á sjóinn og gömlu bæjarmyndina. LÚÐAR.
Er að fara að borða besta kjúlla í heima hjá tengdó núna. Vorum að koma á Djúpa rétt í þessu. Tengdapabbi náði í okkur í Egilstaði :) Norðfjörður á aðfangadag svo þetta verða skemmtileg jól....
Svalbaunin hin Djúpa.
