ótrúuulega gott.....
grískur kjúlli eins og Voila kenndi mér
haugur af kartöflum í svona kjöteldunarpott, þessa svörtu eins og mamma á.
stór dós af tómötum eða svona ferna með hökkuðum.....
salt, pipar, oregano, hvítlaukur og sítrónur....og ekki gleyma ólívuolíunni....
Skerðu parrpöttlurnar í svona 4 báta hverja og góðan haug af þeim í pottinn....kryddaðu vel með salti, oregano og pipar....helltu svo yfir þetta tómötunum og hellllings af ólívuolíu...meira en þér finnst vera nóg...miklu meira! svo kreystirðu eins og þrjár sítrónur yfir þetta og saxar jafnvel smá hvítlauk....
Skellir síðan ofan á þetta...beint ofaná...bara klessir.... eins og einum kjúlla (heilum eða bitum, bringum eða bara...öllu í klessu) og kryddar hann og nuddar jafnvel smá af tómatolíu-sítrónuleginum á hann.... svo horfirðu á kartöflurnar undir og hugsar...ji þær eru alveg að drukkna í olíu og safa...en ákveður bara að henda þessu inn á 180 gráður í einn til einn og hálfan klukkutíma....án loksins....
ekki verra að taka smá feta og juða vel yfir allt heila klabbið rétt áður en þú skellir inn!
MEÐ ÞESSU hefurðu svo þetta foccacia brauð
http://cs.klikk.no/Cs2008/MatOgDrikke/Oppskrift/Recipe.aspx?id=12088045&search=focaccia
ég notaði nú bara fetaost og ólívur og tróð oná í lokin og soldið af olíunni af fetanum og nuddaði yfir....munið að ss er spiseske..=matskeið.
Farið vel eftir eldunarreglunum og látið hefast vel og kólna á eftir...verður svo flöffí og gott....
svo má hafa gott salat með þessu!
Svo geturðu boðið einum svía og Pésa í mat og átt huggulegt laugardagskvöld....það er sniðugt.
Svalbaunin, mett