Afmæli... milljón fagrar fésbókarkveðjur þó á kostnað símhringinga. Fólk nennir greinilega ekki að hringja þegar það getur fésað mann eða msn-að, örfáir notuðu sms sem er greinilega að verða gamaldags :) Oft var þetta einn af fáum tímum ársins sem maður fékk að heyra í fólki sem maður heyrir sjaldan í en nú er öldin önnur.
Halldóra og mamma+pabbi hringdu og systurnar hringdu og sungu eins og endranær. Tvær norskar vinkonur hringdu líka og sungu en flestir létu sér fésbókina nægja. Þetta er á engan hátt svekkelsis blogg! Þetta sýnir bara nýja tíma... Tíma fésbókarinnar. Ég er ekki barnanna best í þessu sjálf get ég sagt ykkur... Maður ætti samt kannski að hugsa sinn gang. Nú ætla ég að reyna að vera dugleg að hringja heldur í mína allra nánustu á afmælum....
Fékk svo litla nágrannastelpu í afmælisgjöf aðfaranótt 4.feb. Hún kom í heiminn þrjúleytið um nóttina og hlaut nafnið Ingrid. Er með 66°N flíspeysu handa henni í pakka sem við ætlum að færa henni annað kvöld...
Búin að vera heima í sleni fimmtudag og föstudag með hálsbólgu og beinverki... Ekkert alvarlegt samt. Hélt þetta hefði bara verið false alarm svo að síðdegis á fimmtudegi svo ég smellti mér í Curling. ÞAÐ ER ALGJÖRT SNILLDARSPORT.
ég og rússnesku vinkonur mínar.
Ég er líka með svo miklar harðsperrur í náranum og í innanverðum lærunum að ég geng eins og kúreki með liðagigt.
Svo eftir körrlíngið sló mér auðvitað niður og fékk beinverki á fullu. Lá í afslappelsi um kvöldið.
Í gær kom Andrea vinkona mín svo í heimsókn á meðan restin af liðinu horfði á fótbolta. Við töluðum í töfraspegil, horfðum á WALL-E, teiknuðum, lásum bækur, borðuðum popp, ís pasta og súrmjólkursjeik og hún skellti sér svo í bað. Náðum svo auðvitað að hengja upp þvott og kveikja upp í arninum. Svo "hnoðaði" hún líka kaffi í gömlu kaffikvörninni hennar Ollu ömmu sem hún gaf svo stolt og gjafmild. Semsagt svaðalegt popparapartí hjá okkur stelpunum.
Í kvöld hef ég heyrt af því að það sé læri í boði á Haukelandsveien og kannski maður troði sér í það partí.
GUNNSA SYS KEMUR EFTIR VIKU :) á afmælinu hennar Siggu sys. Við verðum að halda upp á afmælið með köldum bjór. Held það sé alveg tilvalið.
Er byrjuð í nýjum kúrs hjá strákunum í Fantastic Norway. Skemmtilegir og hressir strákar og flinkir arkitektar. Skoðið endilega heimasíðuna þeirra og sjáið hvernig þeir hafa sigrað heiminn í litla hjólhýsinu sínu...
www.fantasticnorway.com
Ætla að brjóta saman smá þvott og fá mér smá pasta afganga síðan í gær.
Smá kryddostur og gráðostur....
matarrjómi
sveppir
pasta
brokkolí
kjúlli
smátt skorið pepperóní
gott krydd....basilikum, salt og pipar....bara eitthvað dilissjös
hvítlauksbrauð rjúkandi hamingjusamt
svalbaunin, þybbin