Saturday, March 14, 2009
svalbaunablogg?

Ég held svei mér þá að svalbaunabloggið sé að líða undir lok.

Allaveg er ég komin í góða pásu. Enda búin að vera að síðan 2002.

Þakka samfylgdina.




Svalbaunin out.

Thursday, February 26, 2009
hundleiðar á kreppunni

þá er Gunnsa að vera búin að vera hjá mér í tvær vikur.... við vorum að koma úr löngum bíltúr og höfum brallað margt. Borðað góðan mat, drukkið gott öl og höfum almennt haft það mega kósý!

Nú erum við að grilla svínlundir og erum með salat og bakaða kartöflu með.

Pabbi á afmæli í dag, mamma átti afmæli á mánudag og Sigga sys fyrir 2 vikum. Til hamingju allir saman með afmælið....

Ingþór fer bráðum að koma sér heim :)

Eitt erum við systur sáttar um....



Svalbaunin, þreytt á krepputali.

Posted at 07:00 pm by Olla
SKILABOÐAÐU MIG  

Saturday, February 07, 2009
fésbókin át símhringingarnar....

Afmæli... milljón fagrar fésbókarkveðjur þó á kostnað símhringinga. Fólk nennir greinilega ekki að hringja þegar það getur fésað mann eða msn-að, örfáir notuðu sms sem er greinilega að verða gamaldags :) Oft var þetta einn af fáum tímum ársins sem maður fékk að heyra í fólki sem maður heyrir sjaldan í en nú er öldin önnur.

Halldóra og mamma+pabbi hringdu og systurnar hringdu og sungu eins og endranær. Tvær norskar vinkonur hringdu líka og sungu en flestir létu sér fésbókina nægja. Þetta er á engan hátt svekkelsis blogg! Þetta sýnir bara nýja tíma... Tíma fésbókarinnar. Ég er ekki barnanna best í þessu sjálf get ég sagt ykkur... Maður ætti samt kannski að hugsa sinn gang. Nú ætla ég að reyna að vera dugleg að hringja heldur í mína allra nánustu á afmælum....

Fékk svo litla nágrannastelpu í afmælisgjöf aðfaranótt 4.feb. Hún kom í heiminn þrjúleytið um nóttina og hlaut nafnið Ingrid. Er með 66°N flíspeysu handa henni í pakka sem við ætlum að færa henni annað kvöld...

Búin að vera heima í sleni fimmtudag og föstudag með hálsbólgu og beinverki... Ekkert alvarlegt samt. Hélt þetta hefði bara verið false alarm svo að síðdegis á fimmtudegi svo ég smellti mér í Curling. ÞAÐ ER ALGJÖRT SNILLDARSPORT.

ég og rússnesku vinkonur mínar.

Ég er líka með svo miklar harðsperrur í náranum og í innanverðum lærunum að ég geng eins og kúreki með liðagigt.

Svo eftir körrlíngið sló mér auðvitað niður og fékk beinverki á fullu. Lá í afslappelsi um kvöldið.

Í gær kom Andrea vinkona mín svo í heimsókn á meðan restin af liðinu horfði á fótbolta. Við töluðum í töfraspegil, horfðum á WALL-E, teiknuðum, lásum bækur, borðuðum popp, ís pasta og súrmjólkursjeik og hún skellti sér svo í bað. Náðum svo auðvitað að hengja upp þvott og kveikja upp í arninum. Svo "hnoðaði" hún líka kaffi í gömlu kaffikvörninni hennar Ollu ömmu sem hún gaf svo stolt og gjafmild.  Semsagt svaðalegt popparapartí hjá okkur stelpunum.

Í kvöld hef ég heyrt af því að það sé læri í boði á Haukelandsveien og kannski maður troði sér í það partí.

GUNNSA SYS KEMUR EFTIR VIKU :) á afmælinu hennar Siggu sys. Við verðum að halda upp á afmælið með köldum bjór. Held það sé alveg tilvalið.

Er byrjuð í nýjum kúrs hjá strákunum í Fantastic Norway. Skemmtilegir og hressir strákar og flinkir arkitektar. Skoðið endilega heimasíðuna þeirra og sjáið hvernig þeir hafa sigrað heiminn í litla hjólhýsinu sínu...

www.fantasticnorway.com

Ætla að brjóta saman smá þvott og fá mér smá pasta afganga síðan í gær.

Smá kryddostur og gráðostur....

matarrjómi

sveppir

pasta

brokkolí

kjúlli

smátt skorið pepperóní

gott krydd....basilikum, salt og pipar....bara eitthvað dilissjös

hvítlauksbrauð rjúkandi hamingjusamt

 

svalbaunin, þybbin


Friday, January 30, 2009
Í Geilo.

Erum í Geiló í fimmtugsafmæli hjá Bjössa. Afmælið er á morgun og deginum á að eyða á skíðum í góðu geimi og borða hádegismat á skíðasvæðinu... allt okkur að kostnaðarlausu og ótrúleg flottheit. Síðan verður afmælisgleði langt fram eftir kveldi. Ekki búin að fara á skíði í 12 ár... plús að ég er með harðsperrur í rassinum eftir að ég og Stebba fúttballervæf fórumí skvass og tókum vel á því.... Ingþór sagði mér þegar ég kom heim að spaðinn sem hún var með var brotinn....ekki skrýtið að hún var svona ógeðslega léleg. GUNNSA SYS KEMUR EFTIR 2 VIKUR...þá fer Ingþór líka til Gabol að leika við svertingja. Guð blessi ríkisstjórnina. Svalbaunin, trúleysingi.

Friday, January 23, 2009
skemmtileg strætóferð og gleymdur bóndadagur.....

gleymdi bóndadeginum...nýgift og allt......ingþór keypti í matinn og eldaði pítur....þegar hann fór svo að benda á að það væri nú ómöugulegt að standa í þessu á sjálfan bóndadaginn sá ég að mér...dreif mig og lét renna í bað með góðri lykt og gerði kaffi handa honum og hver veit nema hann fái eitthvað fleira skemmtilegt í kvöld.......bakklór eða eitthvað.....ekki bætti úr skák að Ingþór færði mér falleg blóm í gær....bara af einskærri góðvild... úff, ég er slæm eiginkona.

í dag fór ég í strætó.... fyrst heyrði ég á tal tveggja unglinga. Þau voru bæði að urlast úr unglingaveiki og voru unglingaveik í framan og útum allt. Þau voru þarna að ræða lífsins gagn og nauðsynjar og þau komust loks að niðurstöðu.....

þybbni innflytjenda unglingsstrákurinn:  life is like a piece of pie....you never know what you get........

ofurmeikaða pínulitla norska unglingsstelpan:  hihihihihih life is like a dick....when it gets hard....FUCK IT.....

maður lærir svo margt í strætó....

Greyið Ingibjörg og greyið Geir....batakveðjur til þeirra frá Svalbaun.

Djöfull skammaðist ég mín hrikalega þegar norska sjónvarpið var að taka viðtal við heimskan íslenskan  vitleysing með grímu fyrir andlitinu. JESS ÐEI SJÚDD DJÓSST VÓT AGENN AND GETT ÐISS PÍPOL ÁT OFF ÐE GOVVERMENNT.... YESS ÐISS ISS NOTT GÚDD PÍPÚL.... Mér finnst ömurlegt að sjá grímuklædda fávita vera að kasta drasli í alþingishúsið okkar....eru svosum nóg að fávitum í sjálfu alþingishúsinu en það er annað mál.... Það er líka leiðinlegt að sjá þegar lögreglan hagar sér ekki eins og skyldi en mér brá hinsvegar að sjá í fréttunum hversu margir mótmælendur  voru með grímur. Djöfulsins leiðinda fífl og algjörir aumingjar sem getið ekki sýnt á ykkur andlitin og mótmælt eins og fólk og undir nafni.

Mótmæli geta skilað árangri þegar þau eru friðsamleg....ég er bara æst yfir þessu máli og þarf að taka sjöfaldan skammt af blóðþynningarlyfjum og hjartatöflum...

Er farin út að mótmæla grímuklæddum mótmælendum!

 kolklikkaður mótmælandi.....

Olla...mótmælir.


Sunday, January 18, 2009
prófaðu þennan....

ótrúuulega gott.....

grískur kjúlli eins og Voila kenndi mér

haugur af kartöflum í svona kjöteldunarpott, þessa svörtu eins og mamma á.

stór dós af tómötum eða svona ferna með hökkuðum.....

salt, pipar, oregano, hvítlaukur og sítrónur....og ekki gleyma ólívuolíunni....

Skerðu parrpöttlurnar í svona 4 báta hverja og góðan haug af þeim í pottinn....kryddaðu vel með salti, oregano og pipar....helltu svo yfir þetta tómötunum og hellllings af ólívuolíu...meira en þér finnst vera nóg...miklu meira!   svo kreystirðu eins og þrjár sítrónur yfir þetta og saxar jafnvel smá hvítlauk....

Skellir síðan ofan á þetta...beint ofaná...bara klessir.... eins og einum kjúlla (heilum eða bitum, bringum eða bara...öllu í klessu) og kryddar hann og nuddar jafnvel smá af tómatolíu-sítrónuleginum á hann.... svo horfirðu á kartöflurnar undir og hugsar...ji þær eru alveg að drukkna í olíu og safa...en ákveður bara að henda þessu inn á 180 gráður í einn til einn og hálfan klukkutíma....án loksins....

ekki verra að taka smá feta og juða vel yfir allt heila klabbið rétt áður en þú skellir inn!

MEÐ ÞESSU hefurðu svo þetta foccacia brauð

http://cs.klikk.no/Cs2008/MatOgDrikke/Oppskrift/Recipe.aspx?id=12088045&search=focaccia

ég notaði nú bara fetaost og ólívur og tróð oná í lokin og soldið af olíunni af fetanum og nuddaði yfir....munið að ss er spiseske..=matskeið.

Farið vel eftir eldunarreglunum og látið hefast vel og kólna á eftir...verður svo flöffí og gott....

svo má hafa gott salat með þessu!

 

Svo geturðu boðið einum svía og Pésa í mat og átt huggulegt laugardagskvöld....það er sniðugt.

 

Svalbaunin, mett


Tuesday, January 13, 2009
ÁRAMÓTABLOGG

Fyrir tveimur vikum voru áramót. Áramótabloggi lokið.

Stysta upprifjun ársins í heimi geimi:

2008- Kláraði bachelor prófið- var frísk hjá lækni- gifti mig- fór til Murmansk- fór til Englands- fékk vinnu á arkitektastofu- byrjaði að ættleiða- prumpaði í strætó.

Við hvaða fjörð er Búðardalur? er að hlusta á gjéttubetur. Djöfull er ég heimsk.

Það var svo troðið í Smáralindinni þegar við keyrðum framhjá 2. jan að bílarnir þurftu að leggja ofan á hvorum öðrum....kreppa hvað?

Gaman á Íslandi...náði ekki að hitta næstum alla sem mig langaði að hitta í Rvk. Of margir, stuttur tími...bladibla.

Mikið að gera í skólanum. Lítið í blogginu. Litlikall á afmæli á morgun, GLEÐI.

Hver veit nema að ég bloggi einu sinni enn árið 2008.

Svalbaunin, rósakál er gott.


Thursday, December 25, 2008
Gleðileg jól.....

gleðileg jól



hryggur í gær
flottir pakkar
of stórir í ferðatösku
hangiket í dag
og afi
afgangar af hrygg
bíltúr
konfekt
myndavél
gott veður
göngutúr
ættingjar
pabbi fann dónapakka
bumbu sms týndist
glitský
heimagerður ís


jól

Sunday, December 21, 2008
á Íslandi

 Ég spyr.... er eitthvað ljúfara en að hafa ekki komið heim lengi...svo flýgur maður beint inn yfir austfirðina snævi þakna, aðeins byrjað að blárökkna og maður sér beint niður á heimabæinn sinn. Til að toppa svo allt segir flugstjórinn, velkomin heim.

Eina sem var slæmt var Håkon litli sem sparkaði stanslaust í sætið fyrir aftan mig og leiðinlega mamma hans sem bara nennti ekki að leika við hann þessa 2-3 tíma sem flugið varði.....hann vældi líka stanslaust af leiðindum greyið enda var hann bara þriggja ára.

En heim komumst við og var tekið á móti okkur af tollvörðum...smásmyglogsekt.... og svo af Péturspabba, honum Magna Blöndal. Var okkur skutlað beint í slátrið hjá Sigríði og Sigurði sem bragðaðist ljúffenglega, betur en nokkru sinni...

Fengum aðeins að sjá Birgittu og strákana og Gísla á Tobbu. Við fórum á hriklalega góðan jólaljósarúnt sem náði frá Hafnarfirði og um allt höfuðborgarsvæðið. Ekki finnst mér skrýtið að þessi vitlausa þjóð sé á hausnum því þvílíkar breytingar og framkvæmdir sem standa ekki undir sér hef ég bara aldrei séð... Maður tók svosum þátt í góðærinu en verst finnst mér að sjá sumar byggingarframkvæmdirnar...miðbær Hafnarfjarðar var verstur...Búið að byggja blokkir beint við höfnina sem loka alveg á sjóinn og gömlu bæjarmyndina. LÚÐAR.

Er að fara að borða besta kjúlla í heima hjá tengdó núna. Vorum að koma á Djúpa rétt í þessu. Tengdapabbi náði í okkur í Egilstaði :) Norðfjörður á aðfangadag svo þetta verða skemmtileg jól....

Svalbaunin hin Djúpa.


Friday, December 19, 2008
í skólanum :)

Eeeeer að hlusta á fyrirlestur....þeas.....blogga fyrirjólabloggið!

Erum að fara heim í fyrramálið! Hlakkaa mega mikið til....gaman að fara á alla staði...djúpa...nesk....reykjavík..... Gamangamangaman...

Var að flytja síðasta verkefnið fyrir jól í morgun....gekk þrælvel. Hópavinna og við vorum 7 saman...Unnum vel og gerðum gott verkefni JEIJEIJÓL....

Sendi inn jólalagaósk á Bylgjunni í gær. Hversu svöl er ég? =mjög svöl.

Pétur okkar ætlar að gista í kvöld og hann tekur okkur svo með okkur í flugvélina og passar okkur á leið til Íslands....karl faðir hans tekur á móti honum og okkur líka og skutlar okkur beint í sláturveislu hjá Sigríði systur minni....

SLÁTURVEISLU SEGI ÉG! NAMMMMMMMM...svo svið á áramótum hjá Gísla og Tobbu.... gæti ekki verið betra.

Margir búnir að bjóða í heimsókn og við þökkum öll góð boð....við getum samt ekki farið á alla staði....við verðum líka að eiga rólegheitadaga með konfekti og bók svo ég vona að þið fyrirgefið okkur það og komið bara frekar til okkar í heimsókn og látið okkur stjana við ykkur í Bergen.

JÓL JÓL HAMINGJA FALLALAA FALLALALAAAA.

Hlakka til að sjá Íslandið mitt....

Svalbaunin,  þjóðarvæmin.... akkúrat í augnablikinu....


Next Page



Ég er lítil svalbaun að austan....

FLÁMÆLGI RÚLAR
   

<< October 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed