Sunday, November 23, 2008
heihei helgi

Sit í stofunni minni með honum Pésa mínum og tölvunördast. Arininn er á fullu og við vorum að borða afganga af heimagerðri flatböku, ahhh.

Nú er Ingþór litli í Tælandi að juðast í vinnunni og ég nýti mér tækifærið og býð myndarlegum ljóshærðum pilt í heimsókn og gef honum mat.....vonandi eru nágrannarnir ekki að fylgjast með.

Á föstudag bakaði ég pizzu og bauð vinkonu minni í heimsókn. Við drukkum of mikið hvítvín og sungum í singstar í marga klúkkutíma. Sem betur fer var nágrannakonan búin að tilkynna það að hún yrði ekki heima svo við trufluðum engan að ráði....nema sjálfa okkur því tveimur hvítvínsflöskum og 202 lögum síðar fórum við að sofa og vöknuðum með hvítvínshausverk. Sussubí.

Fór á tónleika á Garage í gærkvöldi en það er skemmtistaður í miðbænum. Þrusugóðir tónleikar og ég og Ina vinkona sáttar með frammistöðu  Brimstone Solar Radiation Band.....eftir tónleikana var annaðhvort að drekka bjór eða fara heim í háttinn og við vorum ekki í stuði, Ina eftir langan vinnudag og ég eftir singstarhvítvínsdrykkjukvöld svo við keyrðum heim til Inu og fengum okkur Kebab og hlustuðum á nýja Emilíönu Torrini diskinn. Ágætur alveg hreint og Ina pantaði hann á Itunes og er orðinn aðdáandi. Gisti svo hjá henni og við kúrðum til ellefu en þá fékk ég te og brunch í rúmið. Svo ættleiddi ég Pétur litla smástund og erum nú í sitthvorri tölvunni að vinna "hóst" blogga og melta flatbökuna.

Það var sjúkleg hálka í bænum í gær og þeir sem voru vel hífaðir áttu ekstra erfitt með að standa í lappirnar....tvær vinkonur voru að juða niður brekku og ein skall harkalega niður og rotaðist.... við Ina rukum til en það var strax komið svo mikið fólk að við horfðum bara forvitnar á....svo rankaði nú vinkonan úr rotinu og staulaðist á fætur með vinkonu sína röflandi um að þær þyrftu nú að ná einverjum skemmtisatð....sjúkrabíllinn kom en var sendur til baka tómur.

Úti er snjór og var rosalega fallegt veður í dag. Ég þarf að kíkja í vinnuna á eftir og ná í nokkrar myndir og skutla svo bílnum mínum á sprautuverkstæði...Ein nágrannastelpan, sú indælli, af tveimur ætlar að skutla mér eftir kvöldmat :)

Skólinn já skólinn...nóg að gera og hefur gengið vel að klára allt.

Rás 2 í útvarpinu, þáttur um Bítlana.

Einn mánuður í Ísland. Gleði gleði...við erum bæði spennt fyrir íslandsför og Magni Péturspabbi bauðst til að ná í okkur á stórum bíl svo Sigga við komum bara beint til þín með Magna og Pétri! Þú þarft bara að vera tilbúin, glöð í framan með rjúkandi slátur. Ef þú ert hörð á að sækja okkur þá gerirðu það bara!

Ætla að vinna smá. LIFIÐ HEIL.

Svalbaunin.


Sunday, November 02, 2008
í nótt....

dreymdi mig að við vorum að fara að gifta okkur.... svo komu mamma og pabbi og ýmsir fjölskyldumeðlimir og gistu hjá okkur. Svo gat ég bara ekki sofið því að það voru svo miklar hrotur frá gestaherberginu.                              Ég labbaði inní gestaherbergið frekar pirruð og opnaði og sagði pabba að hætta að hrjóta.....pabbi vaknaði en enn heyrðust hrotur..... mammaaa hættu að hrjóta.... mamma vaknaði en enn var hrotið.... Bryndís hættu að hrjótaaaaaa. Bryndís hættttu að hrjóta! en ekki var það Bryndís.... Denniiii. (Denni bekkjabróðir minn frá Neskaupstað sem auðvitað gisti í sama herbergi og þau öll.....)  Denniiii hættu að hrjóta...En ekki var það Denni....                              þá vaknaði ég, INGÞÓR HÆTTU AÐ HRJÓTAAAAA! Þá hraut Ingþór ofur hátt og kvefaður við hliðina á mér og ég vaknaði við að ég kvæsti þetta megapirruð á hann! Svo hætti hann auðvitað ekkert að hrjóta svo ég bylti mér og bylti pirruð og hvæsti svo aftur...SOFÐU MEÐ OPINN MUNNINN og rauk á fætur til að fara að pissa, eldsnemma og úti enn dimmt....hvað er þig eiginlega að dreyma, sagði Ingþór greyið svefndrukkinn.....mig er ekkert að dreyma..þú ert að hrjóta ÓGEÐSLEGA hátt! svo varð hann auðvitað agalega móðgaður við mig og fannst ekkert fyndið að mig hafði dreymt hrotudraum þegar hann var svo að hrjóta.....      agaleg viðkvæmni þetta klukkan 7 á sunnudagsmorgni......

Ofurletidagur...svaf alltof alltof lengi og var fúl við Ingþór fyrir að hafa ekki vakið mig....     Greyið Ingþór....fær bara hvöss orð og fýluskot frá kellingunni sinni. Hann ætti bara að fá sér nýja....

Bakaði bollur svo seinnipartinn til að bæta aðeins fyrir fýluna....

svalbaunin.....ekki þolinmóð fyrir hrotum.


Saturday, October 25, 2008
laugardagsblogg

og úti rignir.

Í Murmansk er sushi í tísku. Það sýnir hvernig nýjir tímar eru að ganga í garð þar. Fólk á meiri pening og fær meiri laun, gerir upp íbúðirnar sínar og kaupir mat í nýjum stórmörkuðum fullum af Dove sápu og billegum brjóstahöldum. Það eru sushi skilti utan á öðrum hverjum veitingastað með risastórum myndum af sushi. Fengum okkur einu sinni. Héldum að tipsið væri innifalið og gleymdum að tipsa, þjórféa,  æðislega litla þjóninn okkar. Fórum í samviskubiti daginn eftir og ætluðum að borga honum en þá var hann ekki að vinna. Lenínstyttur og andlitsmyndir prýða borgina hvarvetna og arkitektúrinn er....sérstakur. Öllu miðstýrt frá Moskvu svo það fást bara leyfi fyrir nýjum inngöngum á hótel og stórum Gazprom glerhýsum. Á mörkuðum selja gamlar konur hræbillega ullarsokka og sjöl og búðirnar eru fullar af ósmekklegum fatnaði og háhæluðum skóm. Háhælaðir skór útum allt og varla nokkur kona yfir 50 kíló....nema þær giftu og gömlu..þær voru þéttholda og kraftalegar og borðuðu greinilega rauðbeðusúpuna sína og súrbrauðið upp til agna. Kommúnistablokkirnar ekki háar á þessum svæðum. 5 og 9 hæða. Khrushchev
 og Brezhnev 
stíll. Eiginlega ekki eins slæmar og ég hélt. Þarna eiga allir sína eigin hlýju íbúð. Leigumarkaður finnst varla og þú býrð heima hjá mömmu þar til þú kaupir eigið húsnæði. Eftir fall sovéts ca. 1991 þá flytur gríðarlegur fjöldi fólks aftur suður á bóginn og skilur eftir tómar íbúðir. Þá bara braut fólkið sem eftir var niður veggi og gerði stærri íbúðir svo það eru ekki mikið um tómar íbúðir. Blokkirnar og hús almennt eru niðurnídd að utan vegna þess að engar sameignir finnast. Þú átt þína íbúð, gerir hana upp og hefur eins og þú vilt, en gangurinn frammi er að hruni kominn og blokkin öll frekar sjoppuleg að sjá. Miðbærinn er glæsilegur með stórum breiðstrætum í Lenín stíl. Bleik og tannlæknagrænmáluð hús sem skera sig úr grámanum og skapa sterka mótstöðu við gráu blokkirnar í hæðunum á bakvið. Húsin þó líka í niðurníðslu í miðbænum. Mikið af nýjum plönum fyrir borgina vegna aukinna tekna borgarsjóðs. Þótt ýmislegt sé að breytast til...betri? nýs vegar í Rússlandi þarf fólk þó að bera vegabréfin sín á sér ef öryggislögreglan skyldi stoppa þig og spjalla. Það finnst varla atvinnuleysi í Murmansk og glæpir hafa varla fundist þar til nýlega. Vestrænir hættir= aukin glæpatíðni. Ameríkuhatur víðsvegar og fáir tala ensku. Sumir tala örlitla ensku og norsku jafnvel........

Langar að fara í dag og kaupa mér eldrauð stígvél frá Viking. Há. Það var svo mikil rigning í fyrradag að það rigndi uppámóti.  Rigningin kom upp frá götunni og fyllti regnhlífina neðanífrá. Oftast var líka regnhlífin viðsnúin og ómöguleg.

Íslendingar móðgaðir út í Ottó Jespersen, norska háð-spéfuglinn. Ég horfði á þáttinn hans og hló nokkrum sinnum hátt. Fyrr má nú vera viðkvæmnin. Á maður að taka allt persónulega og inn á sig þessa dagana. Nenni því nú engan veginn.

Af hverju fara næstum allir að blogga um stjórnmál, hvað Davíð er ómögulegur og hvað ríkisstjórnin sé glötuð....Hef gaman af góðu stjórnmálabloggi. Ef viðkomandi hefur vit og þekkingu á stjórnmálum. Best finn mér bara að lesa afmæliskökublogg hjá Hröbbu frænku og um síétandi tvíbura hjá Birgittu. Þetta er kannski skiljanlegt í ástandinu í dag en það gerir bloggin allavega ekki skemmtilegri. Hér bloggar varla nokkur sála og fólk les frekar fréttir og Ibsen. Munið: óþarfi að verða leiðinlegur í kreppunni. Nóg að verða fátækur.

Verð að hrista af mér gráslenið og koma mér út.

Ást frá Norvegia.

Svalbaunin.

 


Monday, October 20, 2008
burn after reading og crispy chicken

af titli þessa bloggs að dæmi mætti halda að ég hefði farið í bíó og á nýja kjúklingastaðinn niðrí bæ en því er öðru nær. Sit bara á rassinum heima og prumpa (lakkrísát) og horfi á beðmál í borginni. Reyndum að fara á nýjan kjúklingastað sem var að opna í bænum í dag. Fórum. Hann var lokaður. Maður með kjaftinn troðfullan af kjúkling kom æðandi út og tilkynnti okkur að það opnaði ekki fyrr en á morgun.

1) hver var maðurinn?

2) hvar fékk hann kjúklinginn?

Við enduðum á að elda tortillas og skúra klósettið.

Eins og þið vitið var ég í Norður Norge og Rússlandi fyrir 2 vikum. Alveg hreint ágætis skólaferð. Bæði Norður Noregur og Rússland komu á óvart.

Þegar ég lenti í Hammerfest var það alveg eins og að lenda á Íslandi. Landslagið var eins. Fokker 50 vélin var eins. Fámenna flugstöðin með engum sjáanlegum starfsmanni var eins. Rokið var eins og snjófjúkið var eins.

Ætla ekki að hafa rosa langt blogg heldur ætla ég henda inn myndum með ferðasögu. Ætlaði líka að gera það þegar Hrabba og Viktor voru hérna 2006.

Hér eru nokkrar myndir....gamlar af paviljongnum mínum og svo byrjunin á ferðalagsalbúmi. Er farin að horfa á túdors og ekki nenna að setja inn fleiri myndir.

 

Svalbaunin. Atorkusöm og prumpandi.

From PAVILJONG

Saturday, October 11, 2008
Rússablogg hið eystra....kemur von bráðar

Sælir góðir landsmenn.

Ég vil ávarpa lesendur svalbaunabloggs og aðra þjáða íslendinga og vil minna ykkur á að standa saman á þessum erfiðu tímum.

EREKKIKOMINN TÍMI TIL AÐ TENGJAAAAAAAST

EREKKIKOMINN TÍMI TIL AÐ TENGJAAAAAAAST

TENGJAAAAST

TENGJAST

TENGJASSSSSSST

virkilega góður texti.

Í tilefni kreppu verður kreppulæri hjá mér í kvöld og fátækum íslenskum kreppustúdentum í BAS = mér, Pétri og Unni. Ég á reyndar norsklaunaðan kall svo við erum ekkert í kreppu, eitthvað meiri kreppa hjá hinum. En í kvöld verður ekkert krepputal. Bara gleði og góður matur.

Rússneskt blogg segið þið....ég vil gera góða myndasýningu líka svo...bíðið örlítið í viðbót.

Rússland Rokkar.

baunin svala.


Friday, September 19, 2008
olla á ferð og flugi

ó ó ollaaaa er á ferð og flugiiiiii fallallallalalallaalalalaaa

já hún er svo hressssssss jájá og á flugi.

höf. ók.

Þá kemur litlikall heim í kvöld. Ástkonan fer að sækja hann á völlinn....Ármann. Ég sit heima á meðan og bora í nefið. Ármann er allavega meira spenntur að hitta hann en ég held ég bara. Hann svaf til dæmis ekki í nótt og er búinn að kaupa blóm handa honum.

Sit í skólanum nýbúin að kynna verkefni með hópfélögum mínum. Gekk bara vel. Þetta var svona fyrsti fasinn í að skoða Barentssvæðið og var bekknum skipt í allskonar hópa sem tóku fyrir mismunandi málefni. Við vorum með "arkitektúr og infrastrúktúr"........og NÚ sofnuðu allir.

Er að borða moltuberjajógúrt.Finnst erfitt að borða klumpaða jógúrt. Hjá Gíslunni síðustu helgi fékk ég bestu jógúrt í heimi. Við keyptum hana í lítilli búð í Grunerlökka... (hverfi rétt hjá miðbænum...svali staðurinn að búa) við fórum líka á djasstónleika og skoðuðum fínt hús. Gaman að koma til Oslóar og fara ekkert í miðbæinn heldur skoða allskonar hverfi í kring og fara heim til einnar skólavinkonu okkar og spjalla við mömmu hennar. Finnst Osló falleg ... mest miðbærinn sem er orðinn svolítið þreyttur og fullur af hórum og dópistum.

Norður Noregur á sunnudagsmorgun. Og auðvitað fáið þið mynd í tilefni þess :)

ekki slæmt.

Svalbaunin out


Wednesday, September 17, 2008
með frænku í heimsókn....

Frænka Ingþórs, hún Þórunn er í heimsókn. Hún er héðan:

Geilo

Maðurinn hennar hann Bjössi var að fá sér nýtt hné. Fannst hitt eitthvað hallærislegt og fékk sér því nýtt og fínt í staðinn.

Var í heimsókn hjá Gíslunni í Osló um helgina. Ljómandi huggulegt. Skoðaði margt og gerði margt. Borðaði til dæmis bestu jógúrt sem ég hef smakkað.

Fer til Norður Noregs á sunnudaginn og verð svo að juða þar og í Murmansk í tvær vikur. Kem aftur heim 4. okt. á laugardegi.

Nóg að gera í skólanum og kynning á föstudag. Verð að vera dugleg á morgun....

Ætla að vera sófakartafla núna.

potato out


Friday, September 12, 2008
Seint að kveldi....

Klukkan er margt og ég er að fara í háttinn. Silje vinkona mín kom í heimsókn í kvöld og var að biðja mig að kenna sér á Archicad, teikniprógramm. Svo borðuðum við snakk og vínber. Ætlaði að vera dugleg að læra en náði bara að læra smá.

Borðaði einstæðingspizzu úr búðinni með römmedressingu. Hún var ágæt. Át alla pizzuna.

Á morgun er ég að fara hingað í litla helgarferð.

Er farin að lúlla mér..... Það er ótrúlega léleg b mynd um blinda konu í sjónvarpinu og væminn mann í brúnum jakka. Þau eru ástfangin en hún er bitur því aðgerðin sem hún fór í fyrir 1.5 ári misheppnaðist.

Baunin out.


Thursday, September 11, 2008
draumar

dreymdi Vopnafjörð í nótt. Það er þannig að þegar mig dreymir einhverja staði þá eru þeir alltaf eins, draum eftir draum....Í mörg ár. Vopnafjörður er líka þannig. Rauðhólar  (húsið hennar Steinu frænku, systur pabba) eru alltaf í bænum í staðinn fyrir úti í sveit  og húsið lítur allt öðruvísi út en það gerir í raunveruleikanum. Það liggur líka gangstígur frá húsinu inn í miðbæinn í gegnum djúpa sprungu í fjallið.....var í heimsókn hjá Eygló frænku og Steinu frænku og labbaði svo með Svenna frænda gegnum sprunguna og í miðbæinn í búðina.....búðin er alltaf einhver fönkí útlensk búð með undarlegu úrvali...

Skrýtið þetta með drauma.

Einu sinni dreymdi mig að mamma var vond og læsti mig úti (heima á Franskamel) og ég þurfti að troða mér inn um eldhúsgluggann og drepa hana því hún var svo vond. Það versta var að hún neitaði að drepast og það endaði með því að ég tróð handklæði ofan í hálsinn á henni til að kæfa hana! Hún dó samt ekki....sama hversu ég hoppaði og hoppaði á handklæðinu til að koma því ofan í hálsinn.

Hér er ég að fara í skólaferðalag:

baunin out

 

 


Wednesday, September 10, 2008
kona einsömul......

þá er ég orðin kona einsömul því eiginmaðurinn nýi fór frá mér fyrir nýju vinnuna sína í Englandi. Því sit ég hér eins og klessa í nýja sófanum og horfi á gamanþátt og blogga.

Kom soldið fyrir í dag.....Fór að vinna eftir skóla.

Fannst ég í eitthvað flottum fötum svo þegar ég var að labba að innganginum í vinnunni (niður nýmalbikaða brekku) þá lít ég í gluggann á næsta húsi (mobbaðu mig núna Halldóra) til að skoða mig.....vill ekki betur til en að ég flýg á hausinn framfyrir mig og lendi ótrúlega hlussulega á regnblautu malbikinu.... ligg þar smá stund og það kemur ótrúlega stór blautur blettur í gráa bolinn minn og skítablettur í hvítur skyrtuna. Vandræðalegt staul á fætur og sár í lófunum. Sá engan sem var að horfa en ákvað samt að hlæja vandræðalega svona just in case til að halda "ég meiddi mig ekkert" lúkkinu. Var blaut lengi í vinnunni....er ennþá illt í lófunum.

Borðaði indverskan mat.

Er að fara hingað í skólaferðalag.

Baunin out!


Previous Page Next Page



Ég er lítil svalbaun að austan....

FLÁMÆLGI RÚLAR
   

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed