Entry: í skólanum :) Friday, December 19, 2008



Eeeeer að hlusta á fyrirlestur....þeas.....blogga fyrirjólabloggið!

Erum að fara heim í fyrramálið! Hlakkaa mega mikið til....gaman að fara á alla staði...djúpa...nesk....reykjavík..... Gamangamangaman...

Var að flytja síðasta verkefnið fyrir jól í morgun....gekk þrælvel. Hópavinna og við vorum 7 saman...Unnum vel og gerðum gott verkefni JEIJEIJÓL....

Sendi inn jólalagaósk á Bylgjunni í gær. Hversu svöl er ég? =mjög svöl.

Pétur okkar ætlar að gista í kvöld og hann tekur okkur svo með okkur í flugvélina og passar okkur á leið til Íslands....karl faðir hans tekur á móti honum og okkur líka og skutlar okkur beint í sláturveislu hjá Sigríði systur minni....

SLÁTURVEISLU SEGI ÉG! NAMMMMMMMM...svo svið á áramótum hjá Gísla og Tobbu.... gæti ekki verið betra.

Margir búnir að bjóða í heimsókn og við þökkum öll góð boð....við getum samt ekki farið á alla staði....við verðum líka að eiga rólegheitadaga með konfekti og bók svo ég vona að þið fyrirgefið okkur það og komið bara frekar til okkar í heimsókn og látið okkur stjana við ykkur í Bergen.

JÓL JÓL HAMINGJA FALLALAA FALLALALAAAA.

Hlakka til að sjá Íslandið mitt....

Svalbaunin,  þjóðarvæmin.... akkúrat í augnablikinu....

   3 comments

SVALBAUNIN á Íslandi
December 21, 2008   06:06 PM PST
 
:) auðvitað hittumst við! suma bara hittir maður alltaf. Það er alltaf þannig.
Hrafnhildur
December 21, 2008   06:01 PM PST
 
Já mér sýnist hún vera nýbúin að BÍÍÍBa hann .. hehe .. En mikið rosalega hlakka ég til að sjá ykkur hjónakornin ;) Bara 3 dagar íða ..
Halldóra
December 20, 2008   08:38 PM PST
 
Skil þig vel að geta ekki heimsótt alla :) maður verður líka að eiga konfekt -náttfata- daga um jólin, það er algjör skylda. Vona að við hittumst.
Góða ferð til Ís...
p.s Þetta er mjög krípí mynd!!!!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments