Entry: á Íslandi Sunday, December 21, 2008



 Ég spyr.... er eitthvað ljúfara en að hafa ekki komið heim lengi...svo flýgur maður beint inn yfir austfirðina snævi þakna, aðeins byrjað að blárökkna og maður sér beint niður á heimabæinn sinn. Til að toppa svo allt segir flugstjórinn, velkomin heim.

Eina sem var slæmt var Håkon litli sem sparkaði stanslaust í sætið fyrir aftan mig og leiðinlega mamma hans sem bara nennti ekki að leika við hann þessa 2-3 tíma sem flugið varði.....hann vældi líka stanslaust af leiðindum greyið enda var hann bara þriggja ára.

En heim komumst við og var tekið á móti okkur af tollvörðum...smásmyglogsekt.... og svo af Péturspabba, honum Magna Blöndal. Var okkur skutlað beint í slátrið hjá Sigríði og Sigurði sem bragðaðist ljúffenglega, betur en nokkru sinni...

Fengum aðeins að sjá Birgittu og strákana og Gísla á Tobbu. Við fórum á hriklalega góðan jólaljósarúnt sem náði frá Hafnarfirði og um allt höfuðborgarsvæðið. Ekki finnst mér skrýtið að þessi vitlausa þjóð sé á hausnum því þvílíkar breytingar og framkvæmdir sem standa ekki undir sér hef ég bara aldrei séð... Maður tók svosum þátt í góðærinu en verst finnst mér að sjá sumar byggingarframkvæmdirnar...miðbær Hafnarfjarðar var verstur...Búið að byggja blokkir beint við höfnina sem loka alveg á sjóinn og gömlu bæjarmyndina. LÚÐAR.

Er að fara að borða besta kjúlla í heima hjá tengdó núna. Vorum að koma á Djúpa rétt í þessu. Tengdapabbi náði í okkur í Egilstaði :) Norðfjörður á aðfangadag svo þetta verða skemmtileg jól....

Svalbaunin hin Djúpa.

   2 comments

SVALBAUNIN á Íslandi
December 22, 2008   11:48 AM PST
 
sömuleiðis litli ammríkani...sjáumst um áháramót.
berglind
December 22, 2008   12:52 AM PST
 
jeiiii gaman hjá ykkur!!!!!!!!!!!! einmitt...ég verð alveg meir þegar ég heyri "velkomin heim" ....;) hlakka til að sjá ykkur...

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments