|
gleymdi bóndadeginum...nýgift og allt......ingþór keypti í matinn og eldaði pítur....þegar hann fór svo að benda á að það væri nú ómöugulegt að standa í þessu á sjálfan bóndadaginn sá ég að mér...dreif mig og lét renna í bað með góðri lykt og gerði kaffi handa honum og hver veit nema hann fái eitthvað fleira skemmtilegt í kvöld.......bakklór eða eitthvað.....ekki bætti úr skák að Ingþór færði mér falleg blóm í gær....bara af einskærri góðvild... úff, ég er slæm eiginkona. í dag fór ég í strætó.... fyrst heyrði ég á tal tveggja unglinga. Þau voru bæði að urlast úr unglingaveiki og voru unglingaveik í framan og útum allt. Þau voru þarna að ræða lífsins gagn og nauðsynjar og þau komust loks að niðurstöðu..... þybbni innflytjenda unglingsstrákurinn: life is like a piece of pie....you never know what you get........ ofurmeikaða pínulitla norska unglingsstelpan: hihihihihih life is like a dick....when it gets hard....FUCK IT..... maður lærir svo margt í strætó.... Greyið Ingibjörg og greyið Geir....batakveðjur til þeirra frá Svalbaun. Djöfull skammaðist ég mín hrikalega þegar norska sjónvarpið var að taka viðtal við heimskan íslenskan vitleysing með grímu fyrir andlitinu. JESS ÐEI SJÚDD DJÓSST VÓT AGENN AND GETT ÐISS PÍPOL ÁT OFF ÐE GOVVERMENNT.... YESS ÐISS ISS NOTT GÚDD PÍPÚL.... Mér finnst ömurlegt að sjá grímuklædda fávita vera að kasta drasli í alþingishúsið okkar....eru svosum nóg að fávitum í sjálfu alþingishúsinu en það er annað mál.... Það er líka leiðinlegt að sjá þegar lögreglan hagar sér ekki eins og skyldi en mér brá hinsvegar að sjá í fréttunum hversu margir mótmælendur voru með grímur. Djöfulsins leiðinda fífl og algjörir aumingjar sem getið ekki sýnt á ykkur andlitin og mótmælt eins og fólk og undir nafni. Mótmæli geta skilað árangri þegar þau eru friðsamleg....ég er bara æst yfir þessu máli og þarf að taka sjöfaldan skammt af blóðþynningarlyfjum og hjartatöflum... Er farin út að mótmæla grímuklæddum mótmælendum!
Olla...mótmælir. |
| Halldóra January 24, 2009 01:01 AM PST Djöfull er ég sammála þér með þessi ofbeldisfullu mótmæli! Mér verður bara illt í maganum við að sjá þetta... og líka illt í maganum við að sjá táragasi beitt og piparúða ásamt kylfum! Því það stigmagnar ofbeldið í mótmælunum hvort sem er því þeir eru í raun að díla við ofbeldishneigða einstaklinga sem eru bara að fá útrás og eyðileggja þar af leiðandi fyrir öllum hinum friðsama fjölda sem er að mótmæla friðsamlega- sem btw ég styð fullkomlega. Hugsa til þín - sæta og fullkomna! | ||
| Leave a Comment: |