|
Afmæli... milljón fagrar fésbókarkveðjur þó á kostnað símhringinga. Fólk nennir greinilega ekki að hringja þegar það getur fésað mann eða msn-að, örfáir notuðu sms sem er greinilega að verða gamaldags :) Oft var þetta einn af fáum tímum ársins sem maður fékk að heyra í fólki sem maður heyrir sjaldan í en nú er öldin önnur. Halldóra og mamma+pabbi hringdu og systurnar hringdu og sungu eins og endranær. Tvær norskar vinkonur hringdu líka og sungu en flestir létu sér fésbókina nægja. Þetta er á engan hátt svekkelsis blogg! Þetta sýnir bara nýja tíma... Tíma fésbókarinnar. Ég er ekki barnanna best í þessu sjálf get ég sagt ykkur... Maður ætti samt kannski að hugsa sinn gang. Nú ætla ég að reyna að vera dugleg að hringja heldur í mína allra nánustu á afmælum.... Fékk svo litla nágrannastelpu í afmælisgjöf aðfaranótt 4.feb. Hún kom í heiminn þrjúleytið um nóttina og hlaut nafnið Ingrid. Er með 66°N flíspeysu handa henni í pakka sem við ætlum að færa henni annað kvöld... Búin að vera heima í sleni fimmtudag og föstudag með hálsbólgu og beinverki... Ekkert alvarlegt samt. Hélt þetta hefði bara verið false alarm svo að síðdegis á fimmtudegi svo ég smellti mér í Curling. ÞAÐ ER ALGJÖRT SNILLDARSPORT.
Ég er líka með svo miklar harðsperrur í náranum og í innanverðum lærunum að ég geng eins og kúreki með liðagigt. Svo eftir körrlíngið sló mér auðvitað niður og fékk beinverki á fullu. Lá í afslappelsi um kvöldið. Í gær kom Andrea vinkona mín svo í heimsókn á meðan restin af liðinu horfði á fótbolta. Við töluðum í töfraspegil, horfðum á WALL-E, teiknuðum, lásum bækur, borðuðum popp, ís pasta og súrmjólkursjeik og hún skellti sér svo í bað. Náðum svo auðvitað að hengja upp þvott og kveikja upp í arninum. Svo "hnoðaði" hún líka kaffi í gömlu kaffikvörninni hennar Ollu ömmu sem hún gaf svo stolt og gjafmild. Semsagt svaðalegt popparapartí hjá okkur stelpunum. Í kvöld hef ég heyrt af því að það sé læri í boði á Haukelandsveien og kannski maður troði sér í það partí. GUNNSA SYS KEMUR EFTIR VIKU :) á afmælinu hennar Siggu sys. Við verðum að halda upp á afmælið með köldum bjór. Held það sé alveg tilvalið. Er byrjuð í nýjum kúrs hjá strákunum í Fantastic Norway. Skemmtilegir og hressir strákar og flinkir arkitektar. Skoðið endilega heimasíðuna þeirra og sjáið hvernig þeir hafa sigrað heiminn í litla hjólhýsinu sínu... Ætla að brjóta saman smá þvott og fá mér smá pasta afganga síðan í gær. Smá kryddostur og gráðostur.... matarrjómi sveppir pasta brokkolí kjúlli smátt skorið pepperóní gott krydd....basilikum, salt og pipar....bara eitthvað dilissjös hvítlauksbrauð rjúkandi hamingjusamt
svalbaunin, þybbin |
| berglind í bandó February 9, 2009 11:38 PM PST vá það hljómar gaman...gaman að hafa einhvern til að kenna sem eru að gera eithvað spennandi!!!:) Skemmtu þér vel a meðan Ingþór er í Afríkunni!!! :) | ||
| ollllaaa February 9, 2009 04:07 PM PST JÁ SKO ótrúlega fáir arkitektar með kúk á sér...sumir með slef í kraganum en enginn kúk... nei kúrsinn er í skólanum en stofan er í Oslo. Það eru samt þessir tveir mennstrákar sem eiga stofuna sem eru með kúrsinn okkar :) gaman gaman. | ||
| berglind í bandó February 9, 2009 03:08 AM PST hey jó kúl jó....kíkti á síðuna ..ertu í kúrs á þessum stað...þe. er þetta í sambandi við skólann...en spennandi!!!! þú verður að henda inn mynd af þér þarna..hehe...ég er allavegana búin að skoða myndir af starfsfólkinu þarna....allir svo hipp og kúl í arkitektinum...ekki í barnavinnu...þar eru allir með ælu og kúk á sér... | ||
| Leave a Comment: |